Viktor Örn Margeirsson
Viktor Örn sinnir greiningu og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum og ungmennum. Áhugi Viktors innan sálfræðinnar er að vinna með kvíða, áráttu og þráhyggjuröskun(OCD), lágt sjálfsmat, og frammistöði-, og íþróttasálfræði. Viktor nýtir gagnreyndar aðferðir eins og ACT (Acceptance and commitment therapy) og HAM (Hugræn atferlismeðferð).
Viktor útskrifaðist með MSc gráðu í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík vorið 2022 og fékk starfsleyfi í kjölfarið. Einnig bætti hann við sig örnámi í íþróttasálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2025.
Viktor Örn er einn stofnenda Sálfræðiklíníkarinnar og Hugræn styrks sálfræðiþjónustu. Áður starfað sem sálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni og hjá Heil heilsumiðstöð. Einnig er Viktor knattspyrnumaður og spilar með Breiðabliki í efstu deild á Íslandi sem hann hefur gert yfir áratug. Hann hefur unnið tvo íslandsmeistaratitla og á einn landsleik.
Hann hefur stýrt námskeiðunum fyrir OCD, félagskvíða og lágu sjálfsmati. Viktor vinnur með flestan kvíðavanda, þunglyndi, sjálfsmatsvanda, áföll, áráttu og þráhyggju (OCD), svefnvanda og frammistöðusálfræði fyrir íþróttafólk og vinnustaði. Hann hefur einnig tekið að sér fyrirlestra fyrir íþróttalið og vinnustaði.

