Einstaklingsviðtöl
Einstaklingsmeðferð fer fram í nánu samstarfi við sálfræðing, þar sem markmiðið er að öðlast betri skilning á eigin líðan, hugsunum og hegðun – og finna leiðir sem styðja þig í daglegu lífi.
Í upphafi meðferðar er lögð áhersla á að kynnast aðstæðum þínum og áskorunum. Út frá því er mótuð einstaklingsmiðuð meðferð sem tekur mið af þínum markmiðum og þörfum. Lengd meðferðar er breytileg, en oft er unnið markvisst í skemmri lotum með skýrri áherslu á framfarir.
Við nýtum meðal annars gagnreyndar aðferðir á borð við hugræna atferlismeðferð (HAM) og acceptance and commitment therapy (ACT), þar sem skoðað er hvernig hugsanir, tilfinningar og hegðun tengjast. Með auknum skilningi og hagnýtum æfingum er unnið að því að draga úr vanlíðan og styrkja færni til að takast á við krefjandi aðstæður.

