Hópmeðferð og námskeið

Við hjá Sálfræðiklíníkinni bjóðum upp á hópmeðferðir og námskeið. Stöðug þróun er á efni námskeiðanna en þau snúa að kvíða, lágu sjálfsmati, þunglyndi, þrálátum verkjum og fleiru. Allir hópar og námskeið hafa það markmið að ná betri tökum á vandamálinu.

Hópar og námskeið ná yfir mikið efni á oft styttri tíma og eru því hlutfallslega ódýrari kostur en heil einstaklingsmeðferð. Námskeið sýna sambærilegan árangur og einstaklingsmeðferðir. Taka skal fram að einstaklingar þurfa ekki að tjá sig á námskeiðum frekar en þeir vilja.

Hópnámskeið geta einnig verið hjálpleg þar sem þar heyrir maður sögur annarra með svipaðan vanda.

Námskeið í boði

ACT við þrálátum verkjum

Næsta námskeið 2. mars

HAM VIÐ LÁGU SJÁLFSMATI

ACT að bættri líðan