Um okkur
Arnar Snær Benediktsson
Arnar sinnir greiningu og meðferð á sálrænum vanda hjá ungmennum og fullorðnum í fjarviðtölum.
Hugræn atferlismeðferð.
Arnar styðst við gagnreyndar aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) í greiningu og meðferð á sálfræðilegum vanda. Gagnreynd mælitæki eru einnig notuð til að mæla árangur meðferðar.
Menntun
Arnar lauk bæði BSc námi í sálfræði og MSc námi í klínískri sálfræði við Háskólann í Reykjavík. Arnar öðlaðist klíníska reynslu frá starfsþjálfun sinni hjá Reykjalundi og Litlu Kvíðameðferðarstöðinni. Þar fékk hann þjálfun í meðferðarvinnu með fólki á verkjasviði og með ungmennum undir handleiðslu reyndra sálfræðinga. Þar vann hann meðal annars við meðferð á kvíða, þunglyndi og lágu sjálfsmati.
Handleiðsla
Arnar sækir reglulega handleiðslu og nýtur ráðgjafar frá sérfræðingum og samstarfsaðilum.
Hjálmtýr Klöruson
Hjálmtýr útskrifaðist sem sálfræðingur árið 2021. Hann sinnir greiningu og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum og ungmennum. Áhugi Hjálmtýs innan sálfræðinnar er að vinna með kvíða, lágt sjálfsmat, langvarandi verki og íþróttasálfræði
Hjálmtýr útskrifaðist með BSc gráðu í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2019. Vorið 2021 útskrifaðist hann með MSc gráðu í klínískri sálfræði einnig frá Háskólanum í Reykjavík og fékk starfsleyfi í kjölfarið. Hjálmtýr öðlaðist klíníska reynslu frá starfsþjálfun sinni hjá Reykjalundi og hjá Sól sálfræði- og læknaþjónustu.
Þar fékk hann þjálfun í meðferðarvinnu með fólki á bæði verkja- og gigtarsviði og með ungmennum undir handleiðslu reyndra sálfræðinga. Þar vann hann meðal annars við meðferð á þunglyndi, kvíða, lágu sjálfsmati, langvarandi verkjum og hlutverkamissi. Þá notaðist hann aðallega við ACT (Acceptance and commitment therapy) og HAM (Hugræna atferlismeðferð).
Eftir nám hóf Hjálmtýr störf hjá Reykjalundi sem sálfræðingur á bæði verkja- og gigtarsviði. Þar sinnti hann greiningu og meðferð einstaklinga sem og stýrði hópmeðferðum, þá aðallega HAM við lágu sjálfsmati, HAM við þunglyndi/kvíða og ACT við langvarandi verkjum. Einnig hefur hann sinnt greiningum og meðferðarvinnu á sálfræðistofum samhliða og séð um fjarhópnámskeiðunum ACT við þrálátum verkjum og ACT að bættri líðan hjá VIRK.
Hjálmtýr hefur áhuga á íþróttum og að vinna með íþróttafólki. Hann hefur verið í handknattleik á afreksstigi í yfir áratug og hefur góða þekkingu og reynslu á íþróttaumhverfinu.
Karl Elí Karlsson
Kalli er meistari
Viktor Örn Margeirsson
Contact us
Interested in working together? Fill out some info and we will be in touch shortly. We can’t wait to hear from you!

