Persónuverndarstefna
Persónuverndarstefna Sálfræðiklíníkarinnar
Inngangur
Sálfræðiklíníkin ehf. (hér eftir einnig vísað til sem „við“, „okkar“, „stofunnar“) leggur ríka áherslu á að
tryggja áreiðanleika, trúnað og öryggi persónuupplýsinga sem unnið er með í starfsemi stofunnar.
Persónuverndarstefna þessi nær til persónuupplýsinga sem varða skjólstæðinga, viðskiptavini,
samstarfsaðila og aðra einstaklinga sem eiga í samskiptum við Sálfræðiklíníkina (hér eftir sameiginlega
vísað til sem „þú“).
Stefnunni er ætlað að upplýsa þig um hvaða persónuupplýsingum er safnað, í hvaða tilgangi, hvernig
þær eru unnar og hverjir kunna að fá aðgang að þeim.
1. Tilgangur og lagagrundvöllur
Sálfræðiklíníkin vinnur persónuupplýsingar í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf, þar á meðal
lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð (ESB) 2016/679 (GDPR),
sem og lög nr. 55/2009 um sjúkraskrár.
Vinnsla persónuupplýsinga byggist meðal annars á eftirfarandi lagagrundvelli: - samþykki hins skráða, -
nauðsyn vegna samnings eða undirbúnings samnings, - lagaskyldu sem hvílir á stofunni, - lögmætum
hagsmunum stofunnar, svo sem rekstri, öryggi og gæðastarfi.
2. Hvað eru persónuupplýsingar?
Persónuupplýsingar eru hvers kyns upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan
einstakling, þ.e. einstakling sem hægt er að bera kennsl á beint eða óbeint. Upplýsingar sem ekki er
unnt að rekja til einstaklings teljast ekki persónuupplýsingar.
3. Persónuupplýsingar sem Sálfræðiklíníkin vinnur
a) Skjólstæðingar
Ef þú ert skjólstæðingur hjá Sálfræðiklíníkinni er unnið með persónuupplýsingar í samræmi við lög um
sjúkraskrár. Slíkar upplýsingar geta falið í sér almennar auðkennis- og samskiptaupplýsingar sem og
heilsufarsupplýsingar sem nauðsynlegar eru fyrir meðferð og skráningu í sjúkraskrá.
Allar upplýsingar sem tilheyra sjúkraskrá eru varðveittar í samræmi við lög. Verði sjúkraskrárkerfi lagt
niður er stofunni skylt að afhenda sjúkraskrár Embætti landlæknis í samræmi við gildandi reglur.
1b) Viðskiptavinir og samstarfsaðilar
Ef þú kemur fram fyrir hönd viðskiptavinar eða samstarfsaðila (t.d. fyrirtækis eða stofnunar) kann að
vera unnið með: - nafn, - netfang, - símanúmer, - samskiptasögu, - reiknings- og greiðsluupplýsingar
eftir atvikum.
Slík vinnsla er nauðsynleg til að uppfylla samningsskyldur og lagaskyldur, svo sem samkvæmt
bókhaldslögum.
c) Heimasíða og rafræn samskipti
Við heimsókn á heimasíðu Sálfræðiklíníkarinnar kunna að safnast tæknilegar upplýsingar, svo sem IP-
tala, upplýsingar um vafra, tímasetningar heimsókna og notkun síðunnar. Þessar upplýsingar eru nýttar
í tölfræðilegum og öryggistengdum tilgangi.
4. Bókanir í gegnum Noona
Bókanir á viðtölum fara fram í gegnum Noona, sem er sjálfstæður þjónustuaðili. Þegar þú bókar tíma í
gegnum Noona gildir persónuverndarstefna Noona um þá vinnslu. Sálfræðiklíníkin ber ekki ábyrgð á
vinnslu persónuupplýsinga innan Noona-kerfisins.
5. Varðveisla gagna
Persónuupplýsingar eru varðveittar eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslunnar og í
samræmi við lögbundnar skyldur. Bókhaldsgögn eru varðveitt í sjö ár samkvæmt bókhaldslögum.
6. Miðlun til þriðju aðila
Sálfræðiklíníkin selur aldrei persónuupplýsingar. Persónuupplýsingum kann að vera miðlað til þriðju
aðila þegar slíkt er nauðsynlegt samkvæmt lögum eða vegna þjónustu sem veitt er stofunni, svo sem: -
hýsingar- og upplýsingatækniaðila, - innheimtuaðila ef til vanskilamála kemur, - opinberra aðila þegar
skylt er samkvæmt lögum.
Viðeigandi vinnslusamningar eru gerðir eftir því sem við á.
7. Öryggi persónuupplýsinga
Sálfræðiklíníkin beitir viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum öryggisráðstöfunum til að vernda
persónuupplýsingar gegn óheimilum aðgangi, glötun, breytingum eða misnotkun.
Athygli er vakin á því að rafræn samskipti, svo sem tölvupóstur, geta aldrei verið fullkomlega örugg.
8. Réttindi þín
Þú átt, með fyrirvara um lögbundnar takmarkanir, rétt á að: - fá upplýsingar um vinnslu
persónuupplýsinga um þig, - fá aðgang að persónuupplýsingum og óska eftir afriti, - óska eftir
leiðréttingu eða eyðingu gagna, - andmæla vinnslu eða óska eftir takmörkun, - afturkalla samþykki
þegar vinnsla byggist á samþykki.
Beiðnir má senda á netfangið: salklin@salklin.is.
9. Kvartanir
Teljir þú að vinnsla persónuupplýsinga samræmist ekki gildandi lögum getur þú lagt fram kvörtun hjá
Persónuvernd:
www.personuvernd.is
10. Samskiptaupplýsingar
Ábyrgðaraðili:
Sálfræðiklíníkin ehf.
Kt.: 411225-2670
Hlíðasmára 14
201 Kópavogur
Netfang: salklin@salklin.is
Vefsíða: https://www.salfraediklinikin.is / https://www.salklin.is
11. Endurskoðun
Sálfræðiklíníkin áskilur sér rétt til að uppfæra persónuverndarstefnu þessa vegna breytinga á lögum,
reglum eða starfsemi stofunnar. Uppfærð útgáfa tekur gildi við birtingu á heimasíðu stofunnar.
Síðast uppfært: 7. janúar 2026

