A black-and-white portrait of a man with short hair, wearing a zip-up jacket, looking directly at the camera with a neutral expression.

Karl Elí Karlsson

Karl Elí er sálfræðingur með MSc-gráðu í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Karl Elí hefur starfað sem sálfræðingur á Kvíðameðferðarstöðinni. Hann sinnir greiningu og meðferð fyrir fullorðna og ungmenni sem glíma við kvíðaraskanir svo sem félagskvíða, almenna kvíðaröskun, heilsukvíða, felmtursröskun (e. panic disorder), lágt sjálfsmat, þunglyndi og streitu. Hann hefur einnig mikinn áhuga á frammistöðu- og prófkvíða og vinnu með íþróttafólki. Karl Elí styðst við hugræna atferlismeðferð.