Hreggviður Hermannsson

Hreggviður starfar við íþróttasálfræðiráðgjöf með áherslu á frammistöðu, sjálfstraust og andlegan styrk. Hreggviður er með MSc í íþróttavísindum með áherslu á íþróttasálfræði frá Háskólanum í Reykjavík ásamt BSc í sálfræði. Hann vinnur með íþróttafólki og einstaklingum sem vilja styrkja sig í krefjandi aðstæðum og ná stöðugri frammistöðu undir álagi. Í starfi sínu byggir Hreggviður á nálgunum sem leggja áherslu á að auka hugrænan styrk, skýra sjálfsmynd og meðvitaða tengingu við eigin gildi. Unnið er með hugsanir og tilfinningar á uppbyggilegan hátt, með það markmið að einstaklingurinn geti mætt áskorunum með skýrleika og festu.

Hreggviður hefur sjálfur reynslu úr keppnisíþróttum og þekkir vel kröfur og væntingar sem fylgja árangursumhverfi. Markmið hans er að hjálpa einstaklingum að byggja upp hugrænan styrk sem heldur, bæði innan og utan vallar.