Black and white headshot of a smiling young man with short, neatly styled hair, wearing a dark pinstripe collared shirt against a plain light background.

Hjálmtýr Klöruson

Hjálmtýr sinnir greiningu og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum og ungmennum. Áhugi Hjálmtýs innan sálfræðinnar er að vinna með kvíða, lágt sjálfsmat, langvarandi verki og íþróttasálfræði. Hjálmtýr nýtir gagnreyndar aðferðir eins og ACT (Acceptance and commitment therapy) og HAM (Hugræn atferlismeðferð). Hjálmtýr er einnig á rammasamning hjá sjúkratryggingum og tekur því á móti tilvísunum.

Hjálmtýr útskrifaðist með BSc gráðu í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2019. Vorið 2021 útskrifaðist hann með MSc gráðu í klínískri sálfræði einnig frá Háskólanum í Reykjavík og fékk starfsleyfi í kjölfarið. Einnig bætti hann við sig örnámi í íþróttasálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2025.

Hjálmtýr hefur starfað sem sálfræðingur á verkja- og gigtarsviði hjá Reykjalundi sem og sem sálfræðingur á einkastofum. Þá hefur hann sinnt greiningum og meðferðum einstaklinga sem og stýrt hópmeðferðum, þá aðallega ACT við langvarandi verkjum, ACT að bættri líðan, HAM við lágu sjálfsmati, HAM við þunglyndi/kvíða.


Hjálmtýr hefur einnig áhuga á íþróttum og að vinna með íþróttafólki. Hann var í handknattleik á afreksstigi í yfir áratug ásamt því að þjálfa yngri flokka og hefur því góða þekkingu og reynslu á íþróttaumhverfinu. Þá tekur hann einnig að sér fræðslur og námskeið til fyrirtækja.