Anna María (Maja) sinnir greiningu og meðferð á sálrænum vanda hjá ungmennum og fullorðnum. Hún vinnur meðal annars með kvíða, fíknivanda, streitu og álag, lágt sjálfsmat og annars konar áskoranir sem geta haft áhrif á daglegt líf. Anna María styðst við gagnreyndar aðferðir í sinni vinnu með áherslu á hugræna atferlismeðferð (HAM).
Anna María er með MSc gráðu í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Í starfsnámi sínu öðlaðist hún fjölbreytta reynslu af greiningar- og meðferðarvinnu hjá DAM teymi Landspítalans og Geðheilsumiðstöð barna.
Starfsreynsla Önnu Maríu er fjölbreytt en hún hefur meðal annars starfað hjá SÁÁ sem meðferðarfulltrúi og þar áður hafði hún lengi starfað með ungmennum sem áttu við fjölþættan geðrænan vanda að stríða, meðal annars sem forstöðumaður á heimili fyrir fötluð börn.
Áhugasvið Önnu Maríu innan sálfræðinnar eru meðal annars kvíðaraskanir, fíknivandi og líðan mæðra á meðgöngu og eftir fæðingu, þar á meðal meðgöngu- og fæðingarþunglyndi og kvíði tengdur foreldrahlutverkinu.

